![]()
Robert Langdon, professor í táknfræði við Harvard-háskóla, er vakinn með símtali síðla kvölds á hótelherbergi í París. Roskinn safnstjóri Louvre hefur verið myrtur í einum sýningarsal safnsins og umhverfis hann gefur að líta einkennileg tákn og torræð skilaboð.
Langdon tekur höndum saman við ungan franskan dulmálssérfræðing. Sophie Neveu, sem blandast inn í málið. Saman uppgötva þau röð óvæntra vísbendinga sem leiða lesandann meðal annars á slóð meistaraverka Leonardos da Vinci, leynifélagsins Bræðralags Síons og aldalangra átaka þess við kaþólsku kirkjuna. Da Vinci lykilinn hefur trónað efst á metsölulistum í Bandaríkjunum undanfarið hálft ár enda er hér á ferðinni mögnuð spennusaga sem gagnrýnendur og lesendur keppast við að lofa.
VÁ ...
Bók sem slær algjörlega í gegn. Mögnuð, vel úthugsðu spennusaga.
- The New York Times
Framúrskarandi snjöll. Í senn
heillandi og skemmtileg ... mikið afrek
- Washington Post
Nýr meistari spennusögunnar.
Ævintýri sem hækkar blóþrýstinginn og reynir á heilasellurnar.
- People Magazine