|
Frægðarsól
Jóns Páls Sigmarssonar skaust hratt upp
á stjörnuhimininn og skein skært. Nánast
hvert einasta mannsbarn þekkti
hann og dáðist að framkomu hans og
líkamlegu atgervi. Þessi frækni
víkingur var glæsilegur fulltrúi lands
og þjóðar þar sem hann sigraði hverja
þjóðina á fætur annarri í keppninni um
titilinn “sterkasti maður heims”. Í
áratug
var hann fremstur meðal jafningja og
nánast ósnertanleg lifandi goðsögn.
Æska Jóns Páls og uppruni er þó fæstum
kunn. Þessi ungi drengur kemur í heiminn
árið 1960 en foreldrar hans höfðu þá
þegar slitið samvistum. Snemma fékk hann
að kynnast hinni hörðu lífsbaráttu og
hlífði hann sér hvergi við hefðbundin
búskaparstörf þrátt fyrir ungan aldur.
Lífið við Breiðafjörð var í senn erfitt
og skemmtilegt. Frá tveggja ára aldri
býr hann í Stykkishólmi en lífsbaráttan
yfir sumartímann er í Skáleyjum hjá
foreldrum Sveins Guðmundssonar
fósturföður Jóns Páls. Í Skáleyjum
þurfti Jón snemma að nýta sér líkamlegt
atgervi sitt og óx honum ásmegin með ári
hverju, blóðgrautur, selshreyfar, hrá
egg og annað sem náttúran bauð uppá í
bland við mikla vinnu, veiðar og bústörf
mótuðu vilja og líkama þessa dáða
drengs.
Þegar Jón Páll er kominn á unglingsárin
flyst fjölskyldan til borgarinnar og Jón
verður virkur þátttakandi í íþróttum.
Árið 1975 sér Jón Páll auglýst
lyftinganámskeið í sænska frystihúsinu
og þar með hafði hann fundið sér farveg.
Líf Jóns Páls var sveipað ævintýraljóma.
Hann var mikið í fjölmiðlum enda var
hann hnyttinn og skemmtilegur í
tilsvörum. Frægt var þegar Ómar
Ragnarsson fór með honum til Gísla á
Uppsölum og Gísla varð að orði: “Þú ert
eins og hrísla í höndunum á Gísla”.
Frægust og eftirminnilegust er þó
setningin hans “Ekkert mál fyrir Jón
Pál” sem hann sagði í miðri
réttstöðulyftu með 362,5 kg í lúkunum,
búinn að slá gildandi Evrópumet í beinni
sjónvarpsútsendingu í Ríkissjónvarpinu.
Mikil vinna
hefur verið lögð í þessa nýju
heimildarmynd um ævi Jón Páls
Simarssonar sem dó langt um aldur fram.
Jón Páll markaði djúp spor í sögu þjóðar
okkar þann stutta tíma sem hann lifði og
var m.a.
kosinn
íþróttamaður aldarinnar af þjóðinni í
Gallup könnun ekki alls fyrir löngu.
Óþarfi er að taka fram að myndin og Jón
Páll hafa gríðalega skírskotun til allra
þjóðfélagshópa.
|